Föstudagur, 27. Janúar 2012

Vilja skipta um forystu Samfylkingarinnar

Tillaga um að Samfylkingin haldi landsfund í vor verður rædd á flokksstjórnarfundi nú um helgina. Flytjendur tillögunnar vilja skipta um forystu strax. Þeir lýsa óánægju með áherslubreytingar í ríkisstjórnarsamstarfinu og áhyggjum af því að markmið Samfylkingarinnar náist ekki í málaflokkum sem séu á forræði Vinstri-grænna í ríkisstjórn.

Segir það ekki í verkahring sveitarfélags að borga leigu

„Hlutverk sveitarfélagsins er að aðstoða fólk en geti fólk ekki greitt húsaleiguna af sínum launum eða tekjum, þá er það ekki hlutverk sveitarfélagsins að gera það,“ segir formaður Velferðarráðs borgarinnar. 150 heimili eru í mjög alvarlegum vanskilum hjá Féalagsbústöðum. Verið er að kanna hvers vegna leiga hjá Félagsbústöðum er svipuð og á almennum markaði....

150 í mjög alvarlegum vanskilum hjá Félagsbústöðum

Vanskil hjá Félagsbústöðum hafa stóraukist. Um 150 heimili eru í mjög alvarlegum vanskilum og gætu horft fram á útburð. Kostnaður leigjenda hefur aukist um 70% á fáum árum. Framkvæmdastjóri Félagsbústaða segir að leigan fylgi verðlagi en húsaleigubætur ekki. Það verði að breytast.

Býst við að verðbólgan fari hratt lækkandi

,Því miður er krónan okkar enn og aftur örlagavaldur. Hún féll mjög mikið frá því janúar og fram á sumar í fyrra, sem leiddi til þess að það varð mikil hækkun á verðlagi alla mánuðina frá febrúar og fram í júní,“ segir Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ í samtali við RÚV um þær fréttir að verðbólgan mælist nú 6.5 prósent .

23 skip veiða loðnu fyrir 20 milljarða

,,Búist er við því að veidd verði a.m.k. 400.000 tonn á yfirstandandi loðnuvertíð og útflutningsverðmætið verði 20 milljarðar króna,” segir Kristinn H. Gunnarsson fyrrverandi alþingismaður. ,,Sjávarútvegsráðherrann telur að það verði jafnvel meira eða á þriðja tug milljarða króna.

Námsgagnastofnun kallar út í tómið

„Stundum er eins og við séum að kalla út í tómið þegar eitthvað nýtt og áhugavert kemur út,“ segir útgáfustjóri hjá Námsgagnastofnun. Andri Snær Magnason rithöfundur benti nýlega á að lítil ef nokkur opinber umræða fari fram um skólabækur, sem séu mest lesnu bækur landsins. Bent er á að samræmd próf gætu verið þáttur í einsleitni skólabóka.

Verðbólgan er 6.5 prósent

Verðbólgan miðað við tólf mánuði er 6.,5 prósent og er talsvert meiri verðbólga en greiningardeildir bankanna höfðu spáð. Hagstofan greinir frá þessu en vetrarútsölur eru í fullum gangi og lækkaði verð á fötum og skóm um 10,.3 prósent og á húsgögnum og heimilisbúnaði um 2.2 prósent.

25.01.2012  
Hlutverk stjórnmálamannsins hefur verið mikið á reiki eftir hrun og í sífelldu endurmati. Þreytan með íslenska flokkakerfið er ekki einungis vegna þess að flokkarnir hafi...
25.01.2012  
Það er dimmur dagur fyrir fjölmiðla landsins þegar yfirlýsing líkt og sú sem Egill Einarsson sendi frá sér fyrr í dag fær að birtast í heild sinni á dv.is án þess að spurningamerki...
26.01.2012   Þráinn Bertelsson
Ég sat fastur í skafli ásamt gömlum félaga mínum sem er fremur fámáll. Til að drepa tímann í skaflinum þar til góður jeppasamverji birtist reyndi ég að koma af stað...
24.01.2012   Inga Sigrún Atladóttir
Á íbúafundi um verðtrygginguna í gær var rætt um stöðu lántakenda og verðbólgu síðustu ára. Á fundinum kom fram að ástand fjölda heimila er mjög slæmt, afborganir...

Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir söngkona hefur verið búsett erlendis síðan hún hóf nám í London fyrir rúmum áratug.   Guðrún valdi...
25.01.2012   Bækur
Forseti Íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson, afhenti í dag, miðvikudaginn 25. janúar 2012, Íslensku bókmenntaverðlaunin 2011 við...
25.01.2012   Myndlist
Guðmundur Steingrímsson, alþingismaður og einn af stofnendum nýs stjórnamálaafls undir heitinu Björt framtíð, tekur að sér að leiða...