Smugan » Barnamenning http://smugan.is Vefrit um pólítík og mannlíf Tue, 30 Apr 2013 22:00:37 +0000 is-IS hourly 1 http://wordpress.org/?v=3.4.2 Börnin taka yfir Listasafn Reykjavíkur http://smugan.is/2013/04/bornin-taka-yfir-listasafn-reykjavikur/ http://smugan.is/2013/04/bornin-taka-yfir-listasafn-reykjavikur/#comments Tue, 23 Apr 2013 11:00:49 +0000 gunnarg http://smugan.is/?p=99232 Listasafn Reykjavíkur býður upp á fjölbreytta dagskrá vítt og breitt um borgina á Barnamenningarhátíð 23. – 28. apríl en alls eru 7 viðburðir tengdir safninu. Fullorðnir í fylgd með börnum fá frítt inn á Kjarvalsstaði og Ásmundarsafn meðan á hátíðinni stendur.

Flökkusýningin Kjarval og Gullmávurinn/Ferðalag listmálara er leikþáttur við sýningu á verkum Jóhannesar S. Kjarvals.  Sýningin fjallar á skemmtilegan hátt um listamanninn í lifandi samræðu við áhorfendur. Leikþátturinn tekur um 30. mín. og eftir hana geta börn og fullorðnir skoðað sýningu á verkum Kjarvals. Huginn Þór Arason myndlistamaður er hugmyndasmiður sýningarinnar. Leikþátturinn er unnin í samstarfi við Ragnar Ísleif Bragason leikara.
Sýningin verður sett upp á eftirtöldum stöðum:
23. apríl kl. 11:00 Bókasafn Seltjarnarness – Eiðistorg.
24. apríl kl. 11:00 Árbæjarsafn.
25. apríl kl. 14:00 Listasafn Reykjavíkur – Kjarvalsstaðir.

Ferðaflækja á flakki er leiðsögn og listasmiðja í Mjódd í Breiðholti þar sem leikskólabörnum verður boðið að fræðast og skapa. Hún fer fram 24. og 26. apríl kl. 9 – 16.
„Maður málar bara eins og manni sýnist“ – Leikskólabörn á Sæborg opna sýningu á verkum sínum á Kjarvalsstöðum miðvikudaginn 24. apríl kl. 15. Sýningin stendur til 3. maí.
Viðsnúningur, nýtt útilistaverk eftir Guðjón Ketilsson, verður afhjúpað við Kjarvalsstaði á sumardaginn fyrsta, fimmtudaginn 25. apríl kl. 13.00. Verkið er ætlað fyrir börn í lífi og leik og eru allir velkomnir á afhjúpunina. Í framhaldi af því kl. 14 hefst lifandi leiðsögn fyrir alla fjölskylduna um flökkusýninguna Kjarval og Gullmávurinn/ Ferðalag listmálara. Kampur frístundamiðstöð býður upp á fjölskylduskemmtun á Klambratúni á sumardaginn fyrsta frá kl. 12-14.
Ásmundarsafn býður fjölskyldum að koma og skapa eigin stjörnur í kviksjársmiðju á laugardaginn 27. apríl kl. 13-15.
Hjólaratleikur fjölskyldunnar við styttur bæjarins. Alla daga Barnamenningarhátíðar  23.-28. apríl verður boðið upp á ratleik frá kl. 12 – 18 fyrir alla fjölskylduna á milli útilistaverka í borginni. Leikurinn hefst við Hörpu og lýkur í höggmyndagarði Ásmundar Sveinssonar við Sigtún. Veglegir vinningar eru í boði og verða vinningshafar dregnir út í lok hjólaleiðsagnar, sunnudaginn 28. apríl í Ásmundarsafni. Þátttökuspjöld fást í afgreiðslu Hörpu.
Hjólaleiðsögn fyrir alla fjölskylduna um norður-strandlengjuna þar sem Heiðar Kári Rannversson  ræðir um útiverkin sem þar er að finna. Leiðsögnin hefst við Hörpu kl. 13 og lýkur í garði Ásmundarsafns kl. 15. Að lokum verða verðlaunahafar dregnir úr potti  Hjólaratleiks fjölskyldunnar – Styttur bæjarins.

]]>
http://smugan.is/2013/04/bornin-taka-yfir-listasafn-reykjavikur/feed/ 0
Nemendur sýna í Þjóðmenningarhúsinu http://smugan.is/2013/04/nemendur-syna-i-thjodmenningarhusinu/ http://smugan.is/2013/04/nemendur-syna-i-thjodmenningarhusinu/#comments Fri, 12 Apr 2013 08:50:20 +0000 gunnarg http://smugan.is/?p=98113 Laugardaginn 13. apríl kl. 15:00 verður opnuð sýning á verkum sem nemendur úr Dalskóla, Grandaskóla og Laugalækjarskóla og nemendur við Myndlistaskólann í Reykjavík hafa unnið út frá listaverkinu Safni, eftir Olgu Bergmann myndlistarmann. Sýningin er liður í verkefninu Myndlistarverk margfaldast sem Myndlistaskólinn í Reykjavík, Listasafn Íslands og Þjóðmenningarhúsið standa nú fyrir í annað sinn.

Verkefnið Myndlistarverk margfaldast gengur út á að árlega er valið eitt verk af sýningunni Þúsund ár í Þjóðmenningarhúsinu, sem er yfirlitssýning á íslenskri myndlist frá 19. öld til okkar daga. Nemendur heimsækja sýninguna, skoða verkið og velta því fyrir sér og vinna svo sjálfstæð verk út frá því. Á síðasta ári unnu nemendur Myndlistaskólans í Reykjavík út frá verki Þórarins B. Þorlákssonar en í ár varð verkið Safn fyrir valinu. Í vetur var grunnskólum landsins einnig boðin þátttaka og taka nemendur úr Dalskóla, Grandaskóla og Laugalækjarskóla þátt í sýningunni að þessu sinni.

Opnun sýningarinnar verður sem fyrr segir kl. 15.00 laugardaginn 13. apríl í Listasafni Íslands og Þjóðmenningarhúsinu. Kl. 15:30 leika nemendur úr skólahljómsveit Austurbæjar fyrir sýningargesti í Listasafni Íslands og kl. 16:00 spjallar Olga Bergmann við gesti í Þjóðmenningarhúsinu um alla forvitnilegu hlutina sem leynast í verki hennar Safni og um hinn dularfulla vísindamann doktor Bergmann. Allir eru boðnir hjartanlega velkomnir að skoða þann einstaka ævintýraheim sem verður til þegar myndlist, vísindi og sköpunargleði renna saman í eitt.

Sýningin er framlag stofnananna þriggja til Barnamenningarhátíðar í Reykjavík 2013 og stendur hún til sunnudagsins 28. apríl.

]]>
http://smugan.is/2013/04/nemendur-syna-i-thjodmenningarhusinu/feed/ 0
Kynjaverur á Þjóðminjasafni, barnaleiðsögn á sunnudag http://smugan.is/2013/04/kynjaverur-a-thjodminjasafni-barnaleidsogn-a-sunnudag/ http://smugan.is/2013/04/kynjaverur-a-thjodminjasafni-barnaleidsogn-a-sunnudag/#comments Sat, 06 Apr 2013 15:58:29 +0000 gunnarg http://smugan.is/?p=97506 Á morgun, sunnudaginn 7. apríl kl. 14 mun Helga Einarsdóttir safnkennari fara með barnaleiðsögn um safnið þar sem kynjaverur verða sérstaklega skoðaðar. Á grunnsýningu Þjóðminjasafnsins leynast víða undarlegar skepnur svo sem drekar og skrímsli en leiðsögnin hefst á slóðum landnámsmanna á 9. öld og í gegnum 1200 ára sögu þjóðarinnar fram til nútímans. Kynjaverur í formi silfurgripa á sýningunni Silfur Íslands verða einnig skoðaðar.

Leiðsögnin er um 45 mínútur að lengd og ókeypis.

]]>
http://smugan.is/2013/04/kynjaverur-a-thjodminjasafni-barnaleidsogn-a-sunnudag/feed/ 0
Ekkert handrit verðskuldaði barnabókaverðlaunin http://smugan.is/2013/04/ekkert-handrit-verdskuldadi-islensku-barnabokaverdlaunin/ http://smugan.is/2013/04/ekkert-handrit-verdskuldadi-islensku-barnabokaverdlaunin/#comments Thu, 04 Apr 2013 12:20:41 +0000 gunnarg http://smugan.is/?p=97394 Dómnefnd Íslensku barnabókaverðlaunanna hefur rýnt vel í þau átján handrit sem bárust í samkeppnina að þessu sinni en þótti ekkert þeirra henta sem verðlaunasaga og því verða verðlaunin ekki veitt í ár.

Í tilkynningu frá dómnefndinni segir að höfundar geti sótt handrit sín á skrifstofu Forlagsins, Bræðraborgarstíg 7 í Reykjavík, næstu tvo mánuði en eftir það verði öllum ósóttum handritum fargað.

Íslensku barnabókaverðlaunin hafa verið veitt árlega frá 1986, að undanskildum árunum 1999 og 2005 þegar sama var upp á teningnum og nú. Næsti skilafrestur í samkeppnina verður í byrjun febrúar 2014 og eru allir þeir sem luma á handriti eða hugmynd að barnabók hvattir til að skrifa þá dagsetningu á bak við eyrað og nýta tímann vel. Að Íslensku barnabókaverðlaununum standa auk Forlagsins fjölskylda Ármanns Kr. Einarssonar rithöfundar, Barnavinafélagið Sumargjöf og IBBY á Íslandi.

]]>
http://smugan.is/2013/04/ekkert-handrit-verdskuldadi-islensku-barnabokaverdlaunin/feed/ 0
Úrslitin í Uppsveitastjörnunni í kvöld http://smugan.is/2013/03/urslitin-i-uppsveitastjornunni-i-kvold/ http://smugan.is/2013/03/urslitin-i-uppsveitastjornunni-i-kvold/#comments Fri, 22 Mar 2013 10:24:41 +0000 gunnarg http://smugan.is/?p=96409 Sjö atriði keppa til úrslita í Uppsveitastjörnunni, hæfileikakeppni Upplits, sem fram fer í félagsheimilinu Aratungu í kvöld, föstudagskvöldið 22. mars kl. 20.

 

Ungt og efnilegt tónlistarfólk úr uppsveitunum keppir um titilinn Uppsveitastjörnuna og fær dómnefnd það vandasama verkefni að velja besta atriðið.

Eftirtaldir keppendur komust áfram í úrslit í forkeppnunum sem haldnar voru á Borg og Flúðum:

•    Bjarki Bragason
•    Erla Ellertsdóttir og Ninna Ýr Sigurðardóttir
•    Eva María Larsen
•    Erla Ellertsdóttir
•    Jóhanna Rut Gunnarsdóttir og Jón Aron Lundberg
•    Ninna Ýr Sigurðardóttir
•    Sunneva Sól Árnadóttir

Frumleiki, skemmtun og sköpunargleði vega þungt þegar dómnefndin kveður upp sinn úrskurð. Í dómnefndinni að þessu sinni eru þau Margrét Bóasdóttir, söngkona í Skálholti, Smári Þorsteinsson, trommari hljómsveitarinnar My sweet Baklawa, og Einar Bárðarson, „umboðsmaður Íslands“ með meiru. Uppsveitastjarnan sjálf fær aðalverðlaunin – og heiðurinn – og allir þátttakendur fá auk þess veglegar viðurkenningar úr heimabyggð.

Uppsveitafólk og aðrir gestir eru hvattir til að mæta, fylgjast með spennandi keppni og hvetja sínar stjörnur áfram – en óhætt er að segja að keppendurnir eru allir sem einn afar hæfileikaríkir.

Aðgangseyrir er aðeins 500 krónur en frítt er inn fyrir 12 ára og yngri. Veitingar verða til sölu við vægu verði. Menningarráð Suðurlands styður Uppsveitastjörnuna – og einnig sveitarfélögin í uppsveitunum, sem leggja til félagsheimilin fyrir keppnirnar.

Nánari upplýsingar á vefnum www.upplit.is og á Facebook-síðu Upplits.

]]>
http://smugan.is/2013/03/urslitin-i-uppsveitastjornunni-i-kvold/feed/ 0
Skapandi listasmiðja í Hafnarborg http://smugan.is/2013/03/skapandi-listasmidja-i-hafnarborg/ http://smugan.is/2013/03/skapandi-listasmidja-i-hafnarborg/#comments Fri, 08 Mar 2013 12:38:43 +0000 gunnarg http://smugan.is/?p=94799 Sunnudaginn 10. mars kl. 14 verður boðið upp á skapandi listsmiðju fyrir börn og foreldra í tengslum við sýningu Sirru Sigrúnar Sigurðardóttur, Brot, í Hafnarborg.

 

Sirra Sigrún sækir efnivið sinn meðal annars í vísindakenningar og rannsóknir um leið og hún vinnur með ákveðna grunnþætti myndlistarinnar sem eru litir, form, víddir og hreyfing. Listsmiðjan er tækifæri fyrir unga sem aldna þátttakendur að rannsaka töfra sýningarinnar á skapandi hátt. Þátttaka í listsmiðjunni er ókeypis og allt efni er á staðnum.
Sirra Sigrún Sigurðardóttir (f. 1977) lauk námi við Listaháskóla Íslands árið 2001. Hún hefur tekið þátt í fjölda sýninga bæði hér heima og erlendis, meðal annars í Listasafni Reykjavíkur og Tate Modern í London. Sirra Sigrún er einn stofnenda og eigenda sýningarstaðarins Kling&Bang í Reykjavík. Þar hefur hún skipulagt fjölda sýninga og listviðburða með þátttöku innlendra og erlendra listamanna. Jafnframt því að vera í hópi áhrifamikilla listamanna hér á landi og taka þátt í fjölda sýninga stundaði hún nám í Listfræði við Háskóla Íslands 2003 – 2004. Sirra Sigrún leggur nú stund á framhaldsnám við School of Visual Arts í New York og hlaut nýlega styrk úr sjóði Guðmundu Andrésdóttur, en sjóðurinn styrkir unga og efnilega myndlistarmenn til náms. Í desember síðastliðnum var Sirra Sigrún á meðal 24 alþjóðlegra listamanna sem listtímaritið Modern Painters útnefndi sérstaklega sem listamenn sem vert er að fylgjast með á komandi árum.
Sýning Sirru Sigrúnar, Brot, stendur til 17. mars.

]]>
http://smugan.is/2013/03/skapandi-listasmidja-i-hafnarborg/feed/ 0
Töfrahurðin í Salnum http://smugan.is/2013/03/tofrahurdin-i-salnum/ http://smugan.is/2013/03/tofrahurdin-i-salnum/#comments Wed, 06 Mar 2013 09:00:24 +0000 gunnarg http://smugan.is/?p=94574 Í Salnum í Kópavogi er nú fjórða árið í röð boðið upp á tónlistarveislu með klassískri tónlist ætlaða ungu fólki og fjölskyldum þeirra og í ár voru haldnir fernir tónleikar. Tónleikaröðin er kölluð “Töfrahurð” vegna þess að á sviðinu er hurð sem börn fara í gegnum og breytast þá í lítil tónskáld, í gervi t.d. Mozart, Beethoven Handel o.s.frv, eða jafnvel í dansara eða trommuleikara og fleira skemmtilegt. Tónleikunum er með þessu ætlað að sameina bæði skemmtun og lærdóm, og gera þannig dagskrána líflegri og meira spennandi fyrir krakka og fjölskyldur þeirra.

Í fyrra bauð ég vinningshöfum tónlistarkeppninnar Nótunnar að taka þátt í tónleikum Töfrahurðarinnar þann 10. mars n.k.
Vinningshafarnir eru strengjakvartett úr Tónlistarskóla Reykjavíkur.
Ég leitaði án árangurs að efni fyrir þessi tónleika svo að endingu ákvað ég að skrifa sjálf sögu sem myndar umgjörð um þá. Ég bað eiginmann minn, Steingrím Þórhallsson, organista í Neskirkju og tónskáld, að semja tónlist við söguna og úr varð skemmtileg saga um Strengi á tímaflakki, fyrir strengjakvartett og sögumann.

Þetta er fyrsta verk þessarar tegundar á Íslandi segir stjórnandi Töfrahurðarinnar Pamela de Sensi.

Á tónleikunum verður frumflutt tónlistarævintýrið “Strengir á tímaflakki ” fyrir strengjakvartett og sögumann. Tónlistin er eftir Steingrim Þórhallsson við sögu Pamelu De Sensi. Í verkinu eru strengjahljóðfærin kynnt á skemmtilegan og leikandi hátt en strengjakvartett frá Tónlistarskólanum í Reykjavík, sem voru vinningshafar Nótunnar 2012 sjá um tónlistarflutning. Að auki koma fram dansarar frá Listdansskóla Íslands og leikararnir Kolbrún Anna Björnsdóttir og Sigurþór Heimisson.

Líflegar og litríkar myndir eru eftir Kristínu Maríu Ingimarsdóttur en frá klukkan 12:30 verður fjör í anddyrinu og einnig tveir andlitsmálarar sem bjóða upp á ókeypis andlitsmálun.”

]]>
http://smugan.is/2013/03/tofrahurdin-i-salnum/feed/ 0
Maxímús gerir víðreist http://smugan.is/2013/02/maximus-gerir-vidreist/ http://smugan.is/2013/02/maximus-gerir-vidreist/#comments Tue, 19 Feb 2013 18:35:30 +0000 gunnarg http://smugan.is/?p=92901 Nú á laugardag, 23. febrúar, verður nýjasta sagan um Maxa, Maxímús Músíkús bjargar ballettinum, flutt í einu frægasta tónleikahúsi heims, Fílharmóníunni í Berlín.

 

Það er Fílharmóníuhljómsveit Berlínar, Berliner Philharmoniker, sem bókaði músina til þess að koma og skemmta Berlínarbúum og fékk einn af kammerhópunum sem starfa innan hljómsveitarinnar, Ensemble Berlin, til þess að leika tónlistina í nýrri kammerútsetningu sem gerð var sérstaklega af þessu tilefni. Miðar á tónleikana seldust upp á tveimur tímum.

Allar bækurnar um Maxa hafa komið út á þýsku hjá bókadeild Schott Music sem er eitt allra stærsta útgáfu- og dreifingarfyrirtæki heims á sviði tónlistarbóka og nótnahefta.

Viku seinna heldur Maxímús til Bandaríkjanna til þess að koma fram á Nordic Cool hátíðinni í Kennedy Center í Washington ásamt Sinfóníuhljómsveit Íslands. Öll sinfóníuhljómsveitin okkar fær að fylgja Maxa í þessa ferð og flytja fyrstu söguna hans, Maxímús Músíkús heimsækir hljómsveitina, á skólatónleikum í stóra tónleikasalnum í Kennedy Center, mánudaginn 4. mars, auk þess að leika íslensk og norræn verk á kvöldtónleikum sama dag.

Sagan af Maxa, Maximus Musicus Visits the Orchestra, kom nýverið út á ensku hjá útgáfufyrirtækinu Music Word Media sem staðsett er í New York, bæði í prentaðri útgáfu og á rafbók fyrir spjaldtölvur þar sem hægt er að hlusta á söguna ásamt tónlistinni, horfa á myndirnar og sjá orðin lýsast upp um leið og lesið er.

Ferðalagi Maxa lýkur með upplestri á ævintýrum hans í aðal barnabókabúðinni í New York, Bankstreet Bookstore, laugardaginn 9. mars og Maxi ætlar líka að vera viðstaddur þar, hitta börn og árita bækur.

]]>
http://smugan.is/2013/02/maximus-gerir-vidreist/feed/ 0
Bækur Guðrúnar Helgadóttur í heimsreisu http://smugan.is/2013/02/baekur-gudrunar-helgadottur-fara-um-heimsbyggdina/ http://smugan.is/2013/02/baekur-gudrunar-helgadottur-fara-um-heimsbyggdina/#comments Wed, 13 Feb 2013 11:02:11 +0000 gunnarg http://smugan.is/?p=92261 Bækur Guðrúnar Helgadóttur halda áfram að skemmta börnum um allan heim. Nýverið kom Ástarsaga úr fjöllunum út í Eistlandi og Slóveníu og um þessar mundir kemur bókin Bara gaman út í Þýskalandi.

Ástarsaga úr fjöllunum hefur auk Eistlands, Slóveníu og Íslands komið út í Noregi, Danmörku, Svíþjóð, Færeyjum, Bandaríkjunum, Japan, Kóreu og Ítalíu. Ennfremur gaf Mál og menning bókina út á þýsku, ensku og frönsku.
Þýska útgáfan á Bara gaman er hins vegar fyrsta erlenda útgáfa bókarinnar en hún kemur út hjá forlaginu Dressler, forlagi innan vébanda forlagsrisans Oetinger, undir titlinum Blaubeeren und Vanilleeis, í þýðingu Aniku Lüders-Wolff. Myndskreytingar voru í höndum Leonard Erlbruch en til gamans má geta þess að hann er sonur hins heimsfræga teiknara Wolf Erlbruch sem m.a. teiknaði myndirnar í bókina Moldvarpan sem vildi vita hver skeit á hausinn á henni, og kom út hjá Forlaginu fyrir nokkrum árum.
Dressler veðjar á gott gengi bókarinnar og kynnir hana sem „dásamlega fjölskyldusögu barmafulla af væntumþykju og kímni í anda norrænnar frásagnarhefðar í fremstu röð“. Hefur þýskur útgáfustjóri Guðrúnar, Eva Jaeschke, lagt hart að henni að skrifa framhald bókarinnar og eru allar líkur til þess að Guðrún töfri fram úr erminni aðra bók fyrir haustið.

Bara gaman kom út hjá Máli og menningu árið 2008. Bókin  er fjörug fjölskyldusaga og fjallar um lífið í Bakkabæ sem er algjörlega eins og það á að vera. Tumi hefur reyndar áhyggjur af því að mamma eigi engan mann og Vildís systir hans vildi gjarna að hún ætti svolítið meiri peninga. En Vala litla hefur ekki áhyggjur af neinu og heldur ekki mamma. Hún hamast á vinnustofunni sinni og hefur ekki hugmynd um að það vanti mann í húsið. Lesendum býðst að dvelja sumarlangt með fjölskyldunni á Bakkabæ og það er bara gaman!

]]>
http://smugan.is/2013/02/baekur-gudrunar-helgadottur-fara-um-heimsbyggdina/feed/ 0
Sýningaropnun á Safnanótt á Seltjarnarnesi http://smugan.is/2013/02/syningaropnun-a-safnanott-a-seltjarnarnesi/ http://smugan.is/2013/02/syningaropnun-a-safnanott-a-seltjarnarnesi/#comments Fri, 08 Feb 2013 15:30:21 +0000 gunnarg http://smugan.is/?p=91660 Nýkrýndur bæjarlistamaður Seltjarnarness, Sigga Heimis iðnhönnuður, opnar sýningu á ljósahönnun sinni í Eiðisskeri, sýningarsal Seltirninga í Bókasafninu í kvöld,  á Safnanótt kl. 19:30.
Sigga mun setja svip sinn á Safnanóttina, en auk þess að opna sýningu verður hún með leiðsagnir kl. 20 og kl. 22 og skipuleggur vinnusmiðju fyrir börn, unglinga og fullorðna þar sem búin verða til ljós og leikið með lýsingu á ýmsan hátt frá kl. 20-22.
Unglingakór Valhúsaskóla, Meistari Jakob, syngur vinsæl dægurlög undir stjórn söngkonunnar Ingu Bjargar Stefánsdóttur og salsadansarinn Jóhannes Agnar Kristinsson úr danshópnum Salsa mafían sýnir nýjustu taktana og býður upp á kennslu í grunnsporunum með aðstoð félaga sinna.
Safnanæturleikurinn verður í gangi á Bókasafninu þar sem gestir þurfa að telja ljósin á sýningu Siggu og eru vegleg verðlaun í boði.
Safnanæturstrætó hefur viðkomu á Seltjarnarnesi á Safnanótt, sem nú er að taka þátt aftur í þessari viðburðaríku dagskrá eftir nokkurt hlé.
Safnanótt stendur frá kl. 19-24.
Heitt er á könnunni og drykkir fyrir börnin.

Sjá frekari upplýsingar á safnanott.is

DAGSKRÁIN ER SEM HÉR SEGIR:

Sýningaropnun kl. 19:30
Nýkrýndur bæjarlistamaður Seltjarnarness, Sigga Heimis, opnar sýningu á ljósahönnun sinni í Eiðisskeri, sýningarsal Seltirninga í Bókasafninu. Sigga hefur starfað í fjöldamörg ár fyrir IKEA og sérhægt sig í fjöldahönnun. Eftir hana liggja á fjórðahundrað muna. Á sýningunni verður leitað leiða við að kynna ólík lýsingarform bæði hefðbundin og óhefðbundin.

Fjölskyldusmiðja kl. 20:00-22:00
Tilvalið er fyrir fjölskylduna að skoða ljósasýninguna í Eiðsskeri og taka svo þátt í smiðju sem unnin er undir handleiðslu Siggu Heimis og leiðbeinendum frá Bókasafninu. Á sýningunni er sýnd hefðbundin og óhefðbundin lýsing sem veitir innblástur í sköpun á eigin ljósi. Þátttakendur vinna verkefni á sínum hraða og geta komið og farið að vild.

Leiðsögn og spjall með Siggu Heimis kl. 20:00 – 20:30
Sigga Heimis iðnhönnuður fjallar um sýningu sína í Eiðisskeri. Hún beinir sjónum að þeim ótæmandi aðferðum og leiðum sem hægt er að nálgast í ljósahönun og lýsingu. Eitt af nýrri ljósum hennar er með einota lýsingu, sem dugar í nokkur ár. Í dag er hönnun ljósa ekki síður unnin út frá fagurfræðilegum gildum en notagildi þeirra.

Meistari Jakob kl. 20:45 – 21:00
Um nokkurt skeið hefur verið starfræktur unglingakór innan Valhúsaskóla undir stjórn söngkonunnar og tónmenntakennarans Ingu Bjargar Stefánsdóttur. Kórinn hefur ekki oft komið fram en hér flytur hann nokkur lög, sem eru vinsæl hjá ungu kynslóðinni.

Salsa mafían og Jóhannes kl. 21:15 – 21:45
Danshópurinn Salsa mafían er nýkomin heim frá Kúbu með heitt blóð í æðum. Fulltrúar hópsins með Jóhannes Agnar Kristinsson í broddi fylkingar sýna nýjustu taktana og kenna gestum grunnatriðin í dansinum.

Leiðsögn og spjall með Siggu Heimis kl. 22:00 – 22:30
Sigga Heimis iðnhönnuður fjallar um sýningu sína í Eiðisskeri. Hún beinir sjónum að þeim ótæmandi aðferðum og leiðum sem hægt er að nálgast í ljósahönun og lýsingu. Eitt af nýrri ljósum hennar er með einota lýsingu, sem dugar í nokkur ár. Í dag er hönnun ljósa ekki síður unnin út frá fagurfræðilegum gildum en notagildi þeirra.

]]>
http://smugan.is/2013/02/syningaropnun-a-safnanott-a-seltjarnarnesi/feed/ 0